Kanadíski vinstri bakvörðurinn Alphonso Davies verður ekki með landsliðinu í fyrsta leiknum gegn Bosníu á HM í kvöld.
Davies, sem er stjörnuleikmaður Kanadamanna, er búinn að vera að glíma við meiðsli og hefur ekki enn náð sér.
Hann hefur verið í kappi við tímann ásamt fleiri leikmönnum í kanadíska hópnum en nú er ljóst að hann mun ekki ná fyrsta leiknum gegn Bosníu sem er spilaður klukkan 19:00 í kvöld.
Bakvörðurinn meiddist í leik Bayern München gegn Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðasta mánuði og tók ekki þátt í undirbúningnum með Kanada fyrstu vikuna í landsliðsverkefninu.
Davies hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum með Kanada síðan í mars 2025.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


