Fotbolti.net
12.07.20 - 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arteta: Þeir vita að við gáfum þeim leikinn

Mikel Arteta.

Mikel Arteta.

Canon

Mynd: Getty Images

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var svekktur eftir 2-1 tap gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Tottenham á útivelli í dag.

Arsenal komst 1-0 yfir í leiknum með glæsimark Alexandre Lacazette, en Tottenham kom til baka og vann 2-1.
„Ég er mjög ánægður með hvernig við spiluðum, en við gáfum þeim bara mörkin. Það er synd og á þessu stigi leiksins máttu ekki gera svona," sagði Arteta í viðtali við BBC eftir leikinn.

„Leikmennirnir eru sorgmæddir vegna þess að þeir vita að þeir spiluðu mjög vel. Við vorum með yfirburði. Þeir vita að við gáfum þeim leikinn."

„Mér þykir þetta miður fyrir stuðningsmennina því ég veit hvað þessi viðureign skiptir þá miklu máli. Við vildum gefa þeim eitthvað til að vera stoltir og ánægðir með og mér þykir þetta miður," sagði Arteta.

Eftir tapið í dag er Arsenal í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.