Lið vikunnar í enska - Meistararnir misstigu sig illa

Markvörður: Zion Suzuki (Aston Villa) - Þurfti lítinn aðlögunartíma og hefur tekið við keflinu af Emi Martinez

Mynd: EPA

Varnarmaður: Jay Dasilva (Coventry) - Skoraði fyrsta úrvalsdeildarmark Coventry í 25 ár. Sigurmarkið gegn Nottingham Forest.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Luka Vuskovic (Brighton) - Var út um allt í frábærum sigri á Arsenal og rólegur á boltanum

Mynd: Brighton

Varnarmaður: Jeremy Jacquet (Liverpool) - Langbesti maður vallarins gegn Bournemouth. Ungur, hraður, ákveðinn og rólegur á boltanum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Lewis Hall (Newcastle) - Með sigurmarkið gegn Hull og hefur lagt upp tvö mörk á tímabilinu. Af hverju reyndi Man Utd ekki allt til að næla í hann?

Mynd: EPA

Miðjumaður: Antoine Semenyo (Man City) - Tvö mörk og stoðsending gegn Sunderland

Mynd: EPA

Miðjumaður: Joe Willock (Newcastle) - Skoraði gegn Hull og er að spila vel undir stjórn Matthias Jaissle.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Chema Andres (Brighton) - Miðja Brighton kæfði miðju Arsenal. Andres innsiglaði sigurinn.

Mynd: Brighton

Miðjumaður: Johan Manzambi (Aston Villa) - Skorar og leggur upp í sínum fyrsta byrjunarliðsleik.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Brian Brobbey (Sunderland) - Með þrennu gegn Man City. Hann fær mikið hrós þrátt fyrir tap Sunderland.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Charalampos Kostoulas (Brighton) - Skoraði og lagði upp gegn Arsenal. Unga Grikkjanum líður vel eftir brotthvarf Danny Welbeck og í fjarveru Georginio Rutter.

Mynd: EPA

Stjórinn: Keith Andrews (Brentford) - Enginn leikmaður Brentford í liðinu þrátt fyrir frábæran 3-0 sigur á Chelsea. Góð byrjun hjá Brentford sem er taplaust.

Mynd: EPA
