Fotbolti.net
12.07.26 - 22:58
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA

Auglýsing
Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður alls ekki vel" sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmaður Vals eftir 2-0 tap gegn FH á Kaplakrika.

Lestu um leikinn: FH 2 - 0 Valur

Áttu þið skilið að vinna

„Ég myndi ekki segja það. Við vorum mjög lélegir í hálftíma erum svo mjög góðir í fyrsta hálftímanum í seinni. Úr stöðunni 0-0 þá eigum við að skora eitt tvö þrjú mörk á þessum kafla. Ég veit ekki hvort að það hefði verið sanngjarnt en við förum með núllið inn í hálfleik og gerum taktíska breytingu. Förum í auðveldara kerfi 433, fáum fullt af færum, erum flottir í hálftíma svo fjarar undan þessu og erum orðnir þreyttir og þeir fá spræka menn inn."

Ertu á leiðinni til ÍA?

„Stutta svarið er já."

Ferðu í sumarglugganum eða eftir tímabil?

„Það er á milli félaganna, ég hef ekkert um það að segja. Ég efast um það eins og staðan er núna er ég að klára minn samning fyrir Val og geri eins vel og ég get og fer svo til Skagans eftir tímabil."

Viltu fara í sumarglugganum?

„Nei, það er þá á milli þeirra. Ég er ekki að fara biðja um að fara, bara ef þeir eru tilbúnir að selja mig og Skaginn vill kaupa mig, þá verður það gert. En ég er í rauninni að fara eftir því í sem fer á milli félaganna."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.