Fotbolti.net
12.08.15 - 18:55
Arnar Geir Halldórsson

Oriol Romeu til Southampton (Staðfest)

Oriol Romeu

Oriol Romeu

Canon

Mynd: Southampton

Southampton hefur fest kaup á spænska miðjumanninum Oriol Romeu en hann kemur til liðsins frá Chelsea.
Kaupverðið er talið vera í kringum fjórar milljónir punda.

Romeu gerir þriggja ára samning við Southampton en þessi 23 ára gamli leikmaður eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Stuttgart í þýsku Bundesligunni. Þar á undan var hann á láni hjá Valencia á Spáni.

„Það er mjög ánægjulegt að vera hluti af þessu félagi\", sagði Romeu við undirskriftina.

„Eftir að hafa eytt tveim árum á láni þurfti ég á því að halda að fá varanlegan samning hjá félagi sem hefur markvissa framtíðarsýn. Ég held að ég hafi valið rétt\",

Romeu ólst upp í hinni margrómuðu La Masia akademíu hjá Barcelona og hefur leikið fyrir öll yngri landslið Spánar.

Heimild: Southampton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.