Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. ágúst 2020 11:45
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður Barcelona smitaður - Hefur ekki áhrif á Meistaradeildina
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur gefið út að ónefndur leikmaður hafi greinst með kórónaveiruna.

Um er að ræða leikmann sem er ekki í Meistaradeildarhópnum sem flýgur til Lissabon á fimmtudag til að spila í 8-liða úrslitum keppninnar.

Barca segir að leikmaðurinn hafi ekki verið í návígi við neina úr hópnum.

Fyrr í vikunni tilkynnti Atletico Madrid um tvö jákvæð smit í sínum leikmannahópi en Sime Vrsaljko og Angel Correa eru með veiruna.

Barcelona mætir Bayern München á föstudag, daginn eftir að Atletico Madrid mætir RB Leipzig.

8-liða úrslitin:
12. ágúst: Atalanta - PSG
13. ágúst: RB Leipzig - Atletico Madrid
14. ágúst: Barcelona - Bayern München
15. ágúst: Man City - Lyon
Athugasemdir
banner
banner
banner