Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. ágúst 2020 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lið Stoke sem féll á ávallt fulltrúa í undanúrslitum Meistaradeildarinnar
Choupo-Moting féll með Stoke 2018.
Choupo-Moting féll með Stoke 2018.
Mynd: Getty Images
Eric Choupo-Moting var óvænt hetja þegar Paris Saint-Germain vann dramatískan sigur á Atalanta í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Magnaðar lokamínútur í sigri PSG

Fjölmiðlamaðurinn Richard Jolly birtir oft skemmtilega tölfræði á samfélagsmiðlinum Twitter og hann birti eitt slíkt eftir sigur Parísarliðsins í kvöld.

Það er nefnilega þannig að ef Choupo-Moting spilar í undanúrslitunum þá mun lið Stoke, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum, hafa átt fulltrúa í undanúrslitum Meistaradeildarinnar flest ár frá 2005.

Hér að neðan má sjá tístið og með því að smella hérna má sjá leikmannahóp Stoke 2017/18 tímabilið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner