Fotbolti.net
12.08.26 - 22:52
Andri Stefánsson

Jeffs: Við hefðum klárlega átt að skora fleiri

Auglýsing
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik og Grindavík/Njarðvík áttust við í 16. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, eftir 1-0 sigur.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
„Ég er mjög ánægður með að klára leikinn. Við hefðum kannski átt að refsa þeim meira í fyrri hálfleik. Við komumst í fullt af góðum stöðum og hefðum mátt vera aðeins grimmari og vera með stærri forystu í hálfleik. En ég er mjög ánægður. Þrjú stig á heimavelli, halda hreinu og halda áfram,“ sagði Ian Jeffs eftir leik.

Liðið hefði hæglega getað skorað fleiri mörk og var Ian spurður út í færanýtinguna.

„Færanýtingin var kannski ekki alveg nógu góð en það hafði engin áhrif á okkur. Fyrir utan fyrstu tíu til fimmtán mínúturnar í seinni hálfleik, þar sem Grindavík tók aðeins yfir og var sterkari, fannst mér við vera með góð tök á leiknum. Við komum mjög sterkt til baka og síðustu 25 mínúturnar vorum við aftur komnar á sama stað og í fyrri hálfleik með pressuna. Við unnum boltann á góðum stöðum og sköpuðum færi. Við hefðum klárlega átt að skora fleiri mörk en eitt var nóg.“

Liðið er á fljúgandi siglingu í deildinni og var Ian spurður hvort liðið væri að spila sinn besta fótbolta um þessar mundir.

„Ég veit ekki með það. Við byrjuðum mótið mjög vel með fimm sigurleikjum í röð og mér finnst við kannski vera komin aftur á svipaðan takt, sérstaklega varnarlega. Ég er mjög ánægður með orkustigið í dag, sérstaklega eftir erfiða viku erlendis. Leikmennirnir stóðu sig gríðarlega vel. Það var góð orka í liðinu og frábær karakter að koma úr verkefni erlendis og spila svona leik. Ég er mjög ánægður með liðið.“

Að lokum var Ian spurður út í stórleikinn gegn FH í næstu umferð.

„Við þurfum að halda áfram að spila eins og við erum að gera akkúrat núna. Við mætum mjög góðu FH-liði sem er sóknarsinnað, sækir á mörgum mönnum og skapar mikið af færum. Varnarleikurinn þarf því að vera góður gegn FH. Þetta eru tvö góð lið sem eru að fara að mætast og vonandi verður þetta skemmtilegur leikur.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.