Fotbolti.net
12.08.26 - 22:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Úlfa Dís keypt til Blika (Staðfest)

Vigdís Edda í Stjörnuna

Úlfa Dís

Úlfa Dís

Canon

Mynd: Breiðablik

Kvennaboltinn
Breiðablik hefur keypt Úlfu Dís Kreye Úlfarsóttir frá Stjörnunni. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net borgar Breiðablik tvær milljónir króna fyrir hana.

Úlfa Dís (2001) er uppalin hjá FH en hún gekk til liðs við Stjörnuna árið 2021. Hún spilaði 22 leiki fyrir Stjörnuna síðasta sumar og skoraði 12 mörk. Þá skoraði hún tvö mörk í 14 leikjum fyrir liðið í sumar.
Hún á fjóra landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Þá er Vigdís Edda Friðriksdóttir gengin til liðs við Stjörnuna frá FH. Vigdís sleit krossband í apríl í fyrra en hún hefur komið við sögu í þremur leikjum með FH í sumar.



Vigdís Edda

Vigdís Edda

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.