Fotbolti.net
11.08.26 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Höfnuðu háu tilboði Vals í Örvar

Höfnuðu háu tilboði Vals í Örvar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnað tilboðum í Örvar Eggertsson. Tilboðin hafa bæði komið frá íslenskum félögum og erlendum.

Samkvæmt heimildum er Valur á meðal félaga sem hefur boðið í kantmanninn kraftmikla og var það tilboð í hærra laginu. Ekki fengust upplýsingar um hversu hátt tilboð Vals hefði verið.
Örvar er uppalinn hjá FH en lék sín fyrstu tímabil í meistaraflokki hjá Víkingi. Hann hefur einnig leikið með Fjölni og HK á sínum ferli. Hann varð bikarmeistari með Víkingi 2019. Hann kom í Stjörnuna frá HK eftir tímabilið 2023.

Örvar er fæddur árið 1999 og framlengdi við Stjörnuna í apríl á þessu ári. Þá skrifaði hann út samning sem gildir út árið 2028.

Á síðasta tímabili skoraði hann fjórtán mörk og lagði upp þrjú í Bestu deildinni. Á þessu tímabili hefur hann skorað fimm mörk og lagt upp fjögur. Eitt af mörkunum fimm var sigurmark gegn Val á Hlíðarenda fyrir viku síðan, markið kom í uppbótartíma.

Valur mun eftir tímabilið missa Tryggva Hrafn Haraldsson frá sér til ÍA en sóknarmaðurinn hefur verið mjög öflugur fyrir Val á tímabili. Mögulega hafa Valsarar horft á Örvar sem mögulegan arftaka fyrir Tryggva.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi lokar eftir rúman sólarhring, þegar klukkan slær miðnætti annað kvöld.
Höfnuðu háu tilboði Vals í Örvar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.