Fotbolti.net
12.08.26 - 10:48
Kári Snorrason

Hvað getur gerst fyrir gluggalok? - Djuric mættur í bæinn og hvert fer Danni Finns?

Danijel Djuric flaug til Reykjavíkur í gær.

Danijel Djuric flaug til Reykjavíkur í gær.

Canon

Mynd: KA

Félagaskiptaglugginn í Bestu deild karla og kvenna lokar á miðnætti. Nóg er af hugsanlegum skiptum og vendingum.

Fótbolti.net tók saman hvað gæti hugsanlega gerst fyrir gluggalok.
Komnir/farnir í Bestu í sumarglugganum
TENGT EFNI

Komnir/farnir í Bestu í sumarglugganum

Danijel Djuric mættur í bæinn
Samkvæmt heimildum tók Danijel Dejan Djuric flug að norðan til Reykjavíkur í gær. Hann er sagður ósáttur í KA og vill yfirgefa félagið.

Breiðablik og Valur eru þau lið sem hafa verið orðuð við Djuric. Hann er samningsbundinn KA út tímabilið 2028 en hann var keyptur til KA dýrum dómi frá Króatíu fyrir tímabil.

Keflavík sækir tvo
Jónas Guðni Sævarsson, yfirmaður fótboltamála í Keflavík, sagði í samtali við Fótbolta.net í gær að félagið vonaðist til að geta klárað skiptin á tveimur leikmönnum áður en glugginn lokar.

Leikmennirnir tveir sem um ræðir eru báðir erlendir og geta leyst miðju- og varnarstöðurnar.

Sækir KA framherja?
KA hefur sárvantað hreina níu á tímabilinu og er spurning hvort að félagið nái að fylla í þá stöðu í dag. Skyldi Danijel Dejan Djuric yfirgefa félagið væri sömuleiðis áhugavert að sjá hvort KA finni mann í hans stað.

Elfar Árni Aðalsteinsson hefur skorað átta mörk með Völsungi í Lengjudeildinni á tímabilinu og þekkir KA inn og út.

Andri Rúnar Bjarnason hefur sömuleiðis verið nefndur sem mögulegur kostur en mögulegt er að félagið leiti út fyrir landsteinana.

Þór kynnir Harald Ágúst
Haraldur Ágúst Byrnjarsson er að flytja til Akureyrar og mun ganga í raðir Þórs frá Víkingi á láni.

Haraldur er hægri bakvörður sem er fæddur árið 2007. Hann hefur leikið á láni með Njarðvík á tímabilinu.

Styrkir Valur sig?
Valur mun missa Tryggva Hrafn Haraldsson til ÍA eftir tímabil. Ljóst er að hann mun að öllum líkindum klára tímabilið með Valsmönnum.

Hlíðarendafélagið er á höttunum eftir manni í hans stað en félagið gerði hátt tilboð í Örvar Eggertsson, leikmann Stjörnunnar, á dögunum sem var hafnað. Eins og áður sagði er möguleiki að félagið reyni við Danijel Dejan Djuric.

Hvert fer Danni Finns?
Daníel Finns Matthíasson hefur tjáð Stjörnunni að hann vilji fara frá félaginu. Hann hefur ekki verið í leikmannahóp í undanförnum tveimur leikjum.

KR hefur spurst fyrir um þennan 26 ára miðjumann og er ljóst að hann myndi styrkja flesta lið í deildinni. Lítið hefur farið fyrir Eyjamönnum á markaðinum í sumar og er ekki galið að sjá þá reyna við Danna.

Ásdís Karen á leið til FH
Ásdís Karen Halldórsdóttir er nálægt því að ganga í raðir FH frá Braga í Portúgal.

Hún mun koma til með að fylla í skarð Ídu Marínar Hermannsdóttur, markahæsta leikmanns Bestu deildar kvenna, sem er á leið til Hammarby í Svíþjóð.

Breytingar hjá KR?
Eins og áður sagði kannaði KR stöðuna á Daníel Finns. Þeir gerðu slíkt hið sama og liðsfélaga Daníels hjá Stjörnunni, Sindra Þór Ingimarssyni.

Samkvæmt heimildum hafa félög kannað möguleikann á að fá Michael Akoto frá KR og mögulegt að hann vilji fá að komast inn í stærra hlutverk. KA og Keflavík eru bæði þunnskipuð baka til.

Akoto kom sterkur inn gegn Fram á mánudag og er hæpið að sjá KR-inga losa hann fyrir lokasprettinn.
Keflavík stefnir að kynna tvo erlenda leikmenn í dag.

Keflavík stefnir að kynna tvo erlenda leikmenn í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynir KA við Andra Rúnar?

Reynir KA við Andra Rúnar?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Ágúst verður kynntur hjá Þór seinna í dag.

Haraldur Ágúst verður kynntur hjá Þór seinna í dag.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Tilboði Vals í Örvar var hafnað.

Tilboði Vals í Örvar var hafnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Finns t.h. hefur setið uppi í stúku í undanförnum tveimur leikjum eftir að hann tjáði Stjörnunni að hann vilji yfirgefa félagið.

Daníel Finns t.h. hefur setið uppi í stúku í undanförnum tveimur leikjum eftir að hann tjáði Stjörnunni að hann vilji yfirgefa félagið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hæpið að sjá KR-inga losa Akoto fyrir endasprettinn.

Hæpið að sjá KR-inga losa Akoto fyrir endasprettinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.