Fotbolti.net
12.08.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Villa og Fulham vilja Wan-Bissaka

Villa og Fulham vilja Wan-Bissaka
Canon

Mynd: EPA

Ensk úrvalsdeildarfélög horfa til Aaron Wan-Bissaka sem er hægri bakvörður West Ham.

Sky Sports segir að Aston Villa og Fulham vilja fá hann og einnig hefur Everton verið nefnt í tengslum við fyrrum Man Utd manninn.
Samkvæmt heimildum Sky Sports eru nokkuð góðar líkur á því að Wan-Bissaka fari á Villa Park, en Fulham hefur einnig áhuga.

Fulham væri til í að fá hann á árs láni með möguleika á því að kaupa hann að láninu loknu. Einn heimildamaður Sky Sports segir að lánsverðið séu tvær milljónir punda en samkomulag um framtíðarkaupverð sé ekki í höfn.

Wan-Bissaka er 28 ára og hefur verið hjá West Ham síðan 2024.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.