Fotbolti.net
12.09.19 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Sacchi: Guardiola og Klopp hugsa eins og ég

Sacchi: Guardiola og Klopp hugsa eins og ég
Canon

Mynd: Getty Images

Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, hefur lýst yfir ánægju sinni með þjálfunaraðferðir Pep Guardiola og Jurgen Klopp.

Sacchi var sigursæll þjálfari á sínum tíma en hann vann meðal annars Evrópumeistaratitla með AC Milan árin 1989 og 1990.

Sacchi telur að Guardiola og Klopp séu að gera svipaða hluti og hann gerði sjálfur.
„Fótboltinn hjá þeim er svipaður og hjá mér og ég kann virkilega að meta gildin hjá þeim og hugarfarið," sagði Sacchi.

„Milan lið mitt kom með nýjunar og lið Guardiola og Klopp halda áfram að koma með nýjunga."

„Þeir hugsa eins og ég. Við höfum þá skyldu að láta fólk njóta fótboltans og vera spennt yfir honum. Það er erfiðara að búa til frábæran fótbolta en að tala um það."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.