Fotbolti.net
12.09.26 - 19:52
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: Víðir og KH upp um deild

3. deild: Víðir og KH upp um deild
Canon

Mynd: Víðir Garði

Lokaumferð 3. deildar karla fór fram í dag og tryggðu Víðir Garði og KH sér toppsætin. Þau fara því saman upp og leika í 2. deild á næsta ári.
Víðir var búinn að tryggja sæti sitt í 2. deild fyrir lokaumferðina og gerði átta marka jafntefli í toppbaráttuslag á útivelli gegn Tindastóli í dag.

Þar var einn bráðefnilegur strákur sem er nýbyrjaður í 9. bekk í hóp hjá heimamönnum á Sauðárkróki. Sá heitir Guðni Bent Helgason og skoraði tvennu á fyrstu ellefu mínútunum sínum á vellinum. Hann breytti stöðunni þar með úr 1-2 yfir í 3-2 eftir tvennu frá Ísaki John Ævarssyni í liði gestanna.

Þess má geta að Víðismenn voru manni færri eftir að Kristófer Snær Jóhannsson fékk að líta beint rautt spjald á 34. mínútu.

Tíu leikmenn Víðis sýndu mikla baráttu og náðu að lokum 4-4 jafntefli eftir skemmtilegan slag. Ísak John fullkomnaði þrennuna með jöfnunarmarki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Tindastóll endar í fjórða sæti með 42 stig eftir 22 umferðir. Víðir endar með 46 stig.

KH hafði betur á útivelli gegn KF til að tryggja sér annað sætið. Þá endar Reynir Sandgerði í þriðja sæti þrátt fyrir þægilegan 4-0 sigur gegn KÁ í lokaumferðinni. KÁ fellur niður í 4. deild ásamt Árbæ á meðan Augnablik heldur sæti sínu í 3. deild eftir jafntefli.

Augnablik 0 - 0 Sindri

Tindastóll 4 - 4 Víðir
1-0 Arnar Ólafsson ('5 )
1-1 Ísak John Ævarsson ('14 )
1-2 Ísak John Ævarsson ('39 )
2-2 Guðni Bent Helgason ('49 )
3-2 Guðni Bent Helgason ('56 )
3-3 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson ('77 , sjálfsmark)
4-3 Sverrir Hrafn Friðriksson ('87 )
4-4 Ísak John Ævarsson ('91, víti)

Reynir S. 4 - 0 KÁ
1-0 Ingólfur Sigurðsson ('17 )
2-0 Helgi Snær Agnarsson ('63 )
3-0 Max William Leitch ('78 )
4-0 Ingólfur Sigurðsson ('90 )

Höttur 4 - 2 Árbær
0-1 Kristján Ólafsson ('2 )
1-1 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('7 )
2-1 Eyþór Magnússon ('11 )
3-1 Eyþór Magnússon ('33 )
4-1 Bjarki Nóel Brynjarsson ('56 )
4-2 Andi Andri Morina ('77 )

KF 2 - 3 KH
0-1 Bjarmi Kristinsson ('43 )
0-2 Sigfús Kjalar Árnason ('54 )
1-2 Thomas Lamaille ('56 )
1-3 Haukur Ásberg Hilmarsson ('79 )
2-3 Jón Frímann Kjartansson ('90 )

KV 0 - 7 Ýmir
0-1 Breki Ottósson ('8 )
0-2 Breki Ottósson ('13 )
0-3 Andri Már Harðarson ('22 )
0-4 Óliver Úlfar Helgason ('41 )
0-5 Ásgeir Marteinsson ('73 )
0-6 Breki Ottósson ('76 )
0-7 Egill Örn Pétursson ('78 )
3. deild: Víðir og KH upp um deild
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

3. deild: Víðir og KH upp um deild
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.