Fotbolti.net
12.09.26 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

Woltemade segir svakalega áru yfir Spalletti - „Vonandi fæ ég að bera slíkan hest augum“

Nick Woltemade

Nick Woltemade

Canon

Mynd: Juventus

Nick Woltemade, nýr framherji Juventus, ræddi fyrstu dagana hjá félaginu í viðtali við Gazzetta dello Sport, þar sem talið barst að þjálfaranum Luciano Spalletti, samanburði hans við frísneskan hest og hrósi frá Gianluigi Buffon.
Líkir Woltemade við hest - „Ég á einn frísneskan og mér finnst þeir mjög svipaðir“
TENGT EFNI

Líkir Woltemade við hest - „Ég á einn frísneskan og mér finnst þeir mjög svipaðir“

Woltemade kom til Juventus á láni frá Newcastle undir lok félagaskiptagluggans og hefur þegar þreytt frumraun sína með liðinu. Fundur með Spalletti sannfærði Þjóðverjann um að ganga til liðs við félagið.

„Þegar ég hitti hann fyrst með fjölskyldunni hugsuðum við öll það sama: Það er einhver ára yfir honum. Hann hefur svakalega útgeislun og virðist mjög rólegur náungi en er jafnframt skýr um hvað hann vill, bæði innan vallar og utan.“

„Hann hefur hjálpað mér mikið og er þegar farinn að vinna náið með mér að því að bæta leik minn. Ég er viss um að ég verði betri leikmaður undir hans stjórn,“
sagði Woltemade.

Spalletti líkti Woltemade á dögunum við frísneskan hest, en Þjóðverjinn hefur sjálfur aldrei séð slíkan hest.

„Ég hef aldrei séð þessa tegund í Þýskalandi en ég skil hvað hann átti við, að ég sé hávaxinn leikmaður sem er góður með boltann og góður náungi sem kemur vel saman við alla. Vonandi fæ ég að bera slíkan hest augum einn daginn en þangað til tek ég hann á orðinu.“

Ítalska markvarðargoðsögnin Buffon hefur einnig farið fögrum orðum um Woltemade og sagt hann minna sig á Zlatan Ibrahimovic.

„Að vera nefndur í sömu setningu og Ibrahimovic, sérstaklega af manni eins og Buffon, er ótrúlegt. Það er mögnuð tilfinning að heyra slíkt frá leikmönnum í þessum gæðaflokki og ég kann virkilega að meta samanburðinn.“

„Vonandi get ég einn daginn sagt að ég hafi leikið afrek hans eftir og hakað við það á listanum. Buffon er sjálfur goðsögn og bara það að hann hafi nefnt mig á nafn gerir mig stoltan,“
sagði Woltemade.
Luciano Spalletti

Luciano Spalletti

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.