Roberto Mancini, þjálfari ítalska landsliðsins, var hæstánægður eftir 2-0 sigur Ítalíu á Grikklandi en Ítalía spilar á EM á næsta ári.
                
                
                                    Jorginho og Federico Bernardeschi skoruðu mörk Ítalíu en liðið hefur unnið alla sjö leiki sína í undankeppninni.
Liðið tryggði farseðilinn á EM í kvöld og er níu stigum á undan Finnlandi sem er í öðru sæti og er með ellefu stiga forystu á Armeníu þegar þrír leikir eru eftir. Tvö efstu sætin gefa þátttökurétt á EM.
„Strákarnir gerðu vel. Ég vil samt byrja á því að þakka stuðningsmönnunum á leikvanginum fyrir að koma á leikinn og styðja okkur."
„Við vildum tileinka sigurinn til barnanna á barnaspítalanum," sagði Mancini en landsliðið heimsótti spítalann á dögunum og færði börnunum gjafir og spiluðu leiki með þeim.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
                    
        
         
                 
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
        
