12.10.26 - 11:21
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Lúðvík vill U21 starfið til frambúðar - „Ætla ekki að draga fjöður yfir það“

Lúðvík Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lúðvík Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
U21 landslið Íslands eru umspilseinvígi við Grikkland frá því að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins. Lúðvík Gunnarsson, þjálfari liðsins, mætti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977.
Lúðvík og Ólafur Kristjánsson tóku við liðinu eftir að Ólafur Ingi Skúlason lét af störfum til að taka við Breiðabliki. Lúðvík og Ólafur voru ráðnir til að stýra liðinu út tímabilið.
Eftir erfiða byrjun á riðlinum þá náði liðið öðru sætinu og komst þar með í umspilið. Lúðvík var spurður að því í þættinum hvort hann vildi ekki taka starfið til frambúðar í ljósi góðs árangurs?
„Já, ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það. Ég, ég hef mikinn áhuga á því. Það er skemmtilegt verkefni að þjálfa U21 landsliðið," svaraði Lúðvík.

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
Lúðvík, sem er Skagamaður, hefur lengi starfað við þjálfun yngri landsliða hjá KSÍ og þekkir efnilegustu fótboltamenn landsins vel.
„Ég byrjaði haustið 2018 hjá KSÍ. Þannig að ég er búinn að vera þarna ansi lengi. Á ferlinum hef ég komið að ansi mörgum aldursflokkum, allt frá yngri leikmönnum upp í meistaraflokka. Við skulum orða það þannig að ég fer ekkert hátt, það fer ekkert hátt um mig en mér finnst það bara gott, mér líður vel þannig. Ég vil meina það að á móti sé ég duglegur," segir Lúðvík.
U21 landsliðið mun leika við Grikki í komandi mánuði, heima og að heiman, og sigurliðið mun fara í lokakeppnina sem verður í Serbíu og Albaníu á næsta ári.
„Ég byrjaði haustið 2018 hjá KSÍ. Þannig að ég er búinn að vera þarna ansi lengi. Á ferlinum hef ég komið að ansi mörgum aldursflokkum, allt frá yngri leikmönnum upp í meistaraflokka. Við skulum orða það þannig að ég fer ekkert hátt, það fer ekkert hátt um mig en mér finnst það bara gott, mér líður vel þannig. Ég vil meina það að á móti sé ég duglegur," segir Lúðvík.
U21 landsliðið mun leika við Grikki í komandi mánuði, heima og að heiman, og sigurliðið mun fara í lokakeppnina sem verður í Serbíu og Albaníu á næsta ári.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Frakkland | 10 | +25 | 26 |
| 2 | Iceland | 10 | +11 | 18 |
| 3 | Sviss | 10 | +1 | 17 |
| 4 | Færeyjar | 10 | -9 | 12 |
| 5 | Lúxemborg | 10 | -9 | 10 |
| 6 | Eistland | 10 | -19 | 2 |