Fotbolti.net
12.10.26 - 11:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Eigum við ekki bara að segja að það sé þroskamerki?"

Sigrinnum gegn Fram fagnað.

Sigrinnum gegn Fram fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rætt var um það í Innkastinu, þar sem 25. umferðin í Bestu deildinni var gerð upp, að KR hefði á laugardag staðfest að liðið væri næst besta liðið í deildinni með því að sigra Fram í uppgjöri liðanna í öðru og þriðja sæti deildarinnar.

Fram var að mörgu leyti betra liðið í leiknum en KR skoraði fleiri mörk og vann því leikinn. Fram hefur ekki náð að vinna hin toppliðin í sumar og einungis tekið tvö af fimmtán stigum mögulegum gegn KR og Víkingi í sumar.
Óskar Hrafn: Annars verða menn að finna sér eitthvað annað að gera
TENGT EFNI

Óskar Hrafn: Annars verða menn að finna sér eitthvað annað að gera

„Þetta er annað árið í röð þar sem Óskar mætir í viðtal óánægður eftir sigurleik í Úlfarsárdalnum. Það voru aðeins ýktari viðbrögð í fyrra, en núna virti hann stigin þrjú," segir Kári Snorrason í Innkastinu.

„Þú þarft líka að vinna svona, það er jákvætt fyrir KR-inga að taka allavega einn leik svona í sumar þar sem þeir voru ekkert sérstakir," segir Valur Gunnarsson. Hlusta má á Innkastið í spilaranum neðst.

Fram átti 29 skot að marki KR og tíu á markið. KR átti sjö tilraunir að marki Fram og tvær fóru á mark Framara.

Óskar Hrafn, þjálfari KR, hafði eftirfarandi að segja eftir leikinn:

„Við áttum ekkert skilið í þessum leik. En þetta er fyrsti leikurinn þar sem að við erum lakari aðilinn en fáum eitthvað út úr leiknum. Við sýnum karakter, sýnum kannski aðra hlið á okkur sem að lið sem eru á þeim stað sem að við erum núna þurfa að geta sýnt. Stundum smella hlutirnir ekki, af mörgum ástæðum og mér fannst við einhvern veginn aldrei ná neinum takti í dag sóknarlega. Eftir stendur að við unnum þennan leik og akkúrat þessi leikur kannski snerist ekki um að rýna alveg bara graníthart í frammistöðuna, heldur um að núna erum við með fjögurra stiga forystu á Fram í öðru sætinu og tvær umferðir eftir," sagði Óskar.

„Eigum við ekki bara að segja að það sé þroskamerki? Ég veit ekkert hvað það er. Ég veit bara að liðið mitt sýndi góðan karakter. Við þurftum að þjást stóra hluta leiksins og menn komu sér í gegnum það. Það að sjá það allir að nánast allir Framararnir eiga 30 sentimetra og 10 kíló á okkur, þeir eru stærri og sterkari. Það gerir það að það alvöru verkefni að verjast þeim inni í teignum og mér fannst við gera það að langstærstum hluta mjög vel."

„Ég verð bara að segja eins og er að ég er mjög ánægður með karakterinn. Ég var hérna í fyrra og tuðaði þegar við unnum eitt núll. Þá kvartaði ég yfir spilamennskunni en það er kannski ekkert sanngjarnt gagnvart þessum drengjum að vera akkúrat að kvarta yfir spilamennskunni þegar að staðan er eins og hún er,"
sagði Óskar.
Óskar ánægður með stigin og karakterinn.

Óskar ánægður með stigin og karakterinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leiknum.

Úr leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.25+5060
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik25+336
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.