Alexandra um endurkomu Guðnýjar: „Guðný er ótrúleg“

Alexandra Jóhannsdóttir ber Guðnýju Árnadóttur vel söguna eftir endurkomu hennar til keppni og telur hana gera sterkt tilkall til þess að snúa aftur í íslenska landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðný Árnadóttir eignaðist sitt fyrsta barn í apríl síðastliðnum en er mætt aftur á völlinn, tæpum fimm mánuðum síðar.

Mynd: Guðný Árnadóttir/Instagram

Alexandra Jóhannsdóttir ber Guðnýju Árnadóttur vel söguna eftir endurkomu hennar til keppni og telur hana gera sterkt tilkall til þess að snúa aftur í íslenska landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er afar ánægð með að hafa fengið Guðnýju Árnadóttur aftur á völlinn hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstad eftir barnsburð.

Alexandra: Fjögurra marka forskot breytir engu
Guðný eignaðist sitt fyrsta barn í apríl síðastliðnum og sneri aftur til keppni í september, tæpum fimm mánuðum síðar. Hún hafði þá verið frá keppni í tæpt ár.
Alexandra, sem leikur með Guðnýju hjá Kristianstad, segir endurkomuna hafa verið magnaða.
„Bara geggjað. Guðný er ótrúleg og magnað að sjá hana koma til baka og bara staðan sem hún er í núna. Fimm mánaða gamalt barn og var að byrja núna með okkur síðustu helgi, fyrsta deildarleik.“
Guðný hefur verið frá íslenska landsliðinu vegna barneigna en á að baki 43 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Alexandra telur að Guðný geti fljótlega farið að banka aftur á dyr landsliðsins.
„Hún allavega gerir sterkt tilkall á næstunni, myndi ég segja, að vera hér.“
Íslenska landsliðið undirbýr nú seinni leikinn gegn Króatíu í umspili um sæti á HM. Ísland vann fyrri leikinn 4-0 á útivelli og mætast liðin aftur á Laugardalsvelli á morgun, þriðjudag, klukkan 17:30.

Guðný Árnadóttir eignaðist sitt fyrsta barn í apríl síðastliðnum en er mætt aftur á völlinn, tæpum fimm mánuðum síðar.

Mynd: Guðný Árnadóttir/Instagram
