12.11.26 - 10:55
Kári Snorrason
Andri Lucas tilnefndur sem leikmaður mánaðarins - „Á góðum stað innan sem utan vallar“

Skorað 10 mörk í 14 leikjum á tímabilinu.

Mynd: Blackburn

Skoraði tvö mörk í síðasta landsliðsverkefni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið tilnefndur sem leikmaður mánaðarins fyrir frammistöðu sína í október í ensku Championship-deildinni.
Andri hefur verið sjóðheitur í upphafi tímabils. Hann skoraði fimm mörk í fimm leikjum með Blackburn í október en alls hefur hann skorað tíu mörk í 14 leikjum í Championship á tímabilinu.

TENGT EFNI
Andri Lucas: Er með geggjaðan innri hring sem eru alltaf til staðar
Þrír aðrir leikmenn úr deildinni eru tilnefndir til verðlaunanna. Sérstök dómnefnd velur sigurvegarann og verður hann tilkynntur á morgun.
Á góðum stað innan sem utan vallar
Andri er nú staddur í Plovdiv í Búlgaríu með landsliðinu þar sem liðið mætir heimamönnum í Þjóðadeildinni á morgun. Hann ræddi við Fótbolta.net á dögunum og var spurður hvernig það væri að fara í landsliðsverkefni funheitur.
„Það hjálpar allavega. Ég er bara á mjög góðum stað, innan vallar sem utan vallar. Mér líður mjög vel og búinn að vera stabíll einhvern veginn. Vonandi get ég tekið það með mér inn í þetta verkefni og haldið áfram að skora,“ sagði Andri.
Þrátt fyrir að hafa skorað 10 mörk í deildinni á tímabilinu er Andri aðeins með 3.94 xG í Championship á tímabilinu sem þýðir að hann sé að nýta færin frábærlega.
„Ég reyni alltaf að vera inni í boxinu og er klár þegar boltinn kemur. Það eru náttúrulega stórir og sterkir hafsentar í þessari deild ég reyni að vinna mig inn 2, 3 metra og svæði í boxinu til að koma mér í færi. Þegar boltinn dettur fyrir mig þá er einhver tilfinning að ég sé að fara þruma honum í markið. Þannig vonandi heldur það bara áfram,“ sagði Andri jafnframt.