Fotbolti.net
12.11.26 - 09:48
Kári Snorrason

Búið að reka Carrick

Rekinn frá United.

Rekinn frá United.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick hefur verið rekinn sem þjálfari Manchester United. Brottreksturinn hefur legið í loftinu síðustu daga en félagið á enn eftir að tilkynna um tíðindin.

Blaðamennirnir Andy Mitten og Fabrizio Romano greina frá uppsögninni.

Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska landsliðsins, er sagður vera kominn með munnlegt samkomulag um að taka við liðinu.

Carrick var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari liðsins í upphafi árs og náði góðum árangri. Hann endaði með liðið í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og var verðlaunaður með stjórasætinu til frambúðar.

Gengi liðsins á yfirstandandi tímabili hefur verið langt undir væntingum og situr United nú í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur aðeins unnið þrjá sigra í fimmtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.