Glódís var leikfær gegn PSG - „Lítur bara vel út“

Þorsteinn er bjartsýnn á stöðu landsliðsfyrirliðan

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þorsteinn er bjartsýnn á stöðu landsliðsfyrirliðan

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, er bjartsýnn á stöðu Glódísar Perlu Viggósdóttur fyrir umspilsleikina gegn Portúgal. Hann segir fyrirliðann hafa verið leikfæran þegar Bayern München mætti Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Glódís hefur glímt við hnémeiðsli og ekki komið við sögu í síðustu leikjum Bayern. Hún var á varamannabekknum þegar liðið vann PSG, 2–1, í París en kom ekki inn á.
Þorsteinn var spurður út í stöðu hennar á blaðamannafundi í dag. Að hans sögn æfði Glódís bæði á sunnudag og mánudag og var tilbúin til að spila á þriðjudag. Það hefði hins vegar verið ákvörðun Bayern að nota hana ekki í leiknum.
Hann sagði bólgur hafa þurft tíma til að hjaðna en staðan væri nú góð og hann bjartsýnn.
Ísland mætir Portúgal á útivelli 1. desember og á Laugardalsvelli fjórum dögum síðar, laugardaginn 5. desember. Sigurliðið tryggir sér sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.
