Fotbolti.net
12.11.26 - 14:30
Albert Guðmundsson

Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Egill Ploder Óttósson

Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Egill Ploder spilaði með Kríu í 4. deildinni 2015-2017

Egill Ploder spilaði með Kríu í 4. deildinni 2015-2017

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Nýr þáttur af 38 umferðum kom út í vikunni en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban en þeir félagar taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessari viku var það Egill Ploder Ottósson útvarpsmaður.
Liðið hans Egils, sem ber nafnið "Xpl0d3r", sótti 77 stig í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og var skipað eftirfarandi leikmönnum:

Markmaður
Verbruggen (6)

Varnarmenn
De Cuyper (6), Virgil (4), Diop (1), Calafiori (6)

Miðjumenn
Odegaard (11), Gakpo (3), B.Fernandes (10), Gross (20), Rogers (2)

Sóknarmenn
Isak (8)

Egill var með fyrirliðabandið á Joao Pedro sem spilaði ekki og datt í lukkupottinn með það að Gross var varafyrirliði og fékk 10 stigin sín tvöfölduð. Traustið á Odegaard og B.Fernandes eftir brösugt gengi undanfarið borgaði sig þar sem þeir félagar sóttu 11 og 10 stig.

Við óskum Agli góðs gengis í ár og vonum að honum takist að byggja ofan á þessa góðu umferð.

Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net, Spotify og á YouTube.

Frestur til að gera breytingar fyrir 11. umferð er kl 11:00 laugardaginn 21. nóvember. Umferðin hefst á leik Man City og Fulham kl 12:30 sama dag.

Liðið hans Egils er tekið fyrir á mínútu 18:33 í þættinum sem má sjá hér fyrir neðan.

Liðið hans Egils skilaði 77 stigum í 10. umferð

Liðið hans Egils skilaði 77 stigum í 10. umferð

Canon

Mynd: Fantasy Premier League

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.