Fotbolti.net
12.12.14 - 14:10
Elvar Geir Magnússon

Sigmar Ingi í Fram (Staðfest)

Sigmar Ingi Sigurðarson.

Sigmar Ingi Sigurðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar sem féllu í 1. deildina á liðnu tímabili hafa fengið til sín markvörðinn Sigmar Inga Sigurðarson en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Fram en Kristinn Rúnar Jónsson var ráðinn þjálfari eftir fallið.
Tilkynning frá Fram:
Markvörðurinn Sigmar Ingi Sigurðsson skrifaði í morgun undir tveggja ára samning við Fram. Sigmar Ingi, sem er 31 árs, kemur til Safamýrarliðsins frá Haukum þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö ár.

Sigmar Ingi er uppalinn í Breiðabliki en hann spilaði 21 leik með Breiðablik í úrvalsdeild og bikarkeppni á árunum 2009-2012 en á þeim tíma varð Kópavogsliðið bæði Íslands- og bikarmeistari. Fram bíður Sigmar Inga velkomin til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.