Manchester United gerði 2-2 jafntefli við nýliða Aston Villa á Old Trafford í byrjun mánaðar.
Jack Grealish kom gestunum yfir snemma leiks og jöfnuðu heimamenn rétt fyrir leikhlé. Skalli Marcus Rashford fór þá í Tom Heaton, markvörð Villa, og í netið.
Markið var skráð sem sjálfsmark hjá Heaton og vildi Man Utd fá að breyta skráningunni. Rauðu djöflarnir sendu myndskeið máli sínu til stuðnings þar sem sérfræðingar halda því fram að skalli Rashford hefði samt endað í netinu án aðstoðar frá Heaton.
Rökstuðningur Man Utd þótti ekki nægja og er niðurstaðan sú að skalli Rashford hefði líklegast ekki endað í netinu án viðkomu í Heaton.
Rashford er í fjórða sæti yfir markahæstu menn úrvalsdeildarinnar í haust, með 10 mörk og 4 stoðsendingar. Pierre-Emerick Aubameyang og Tammy Abraham eru með 11 mörk, Jamie Vardy er markahæstur með 16.
Athugasemdir