Fotbolti.net
12.12.20 - 15:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arna Sól í HK (Staðfest) - „Viss um að HK væri liðið fyrir mig"

Arna Sól.

Arna Sól.

Canon

Mynd: HK

Kvennaboltinn
HK hefur samið við Örnu Sól Sævarsdóttur um að leika með liðinu næstu tvö árin
Arna Sól er fædd árið 2000 og er uppalin hjá KA. Hún lék með Fram á liðinni leiktíð. Hún hafði áður leikið með Hömrunum tímabilin 2018 og 2019.

HK mun leika í Lengjudeildinni á næstu leiktíð þar sem liðið var í öðru sæti í 2. deildinni í sumar.

„Ég er virkilega ánægð með að vera að gengin til liðs við HK og get varla beðið eftir að hefja æfingar með stelpunum. Nokkur lið sýndu mér áhuga nú í haust en eftir nokkra fundi með forsvarsfólki HK var ég viss um að HK væri liðið fyrir mig. Það er ljóst að það er mjög mikill metnaður hjá félaginu og öll aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyndar. Ég mun leggja mig alla fram til að hjálpa liðinu í baráttunni í Lengjudeildinni í sumar," sagði Arna í viðtali sem birt var á heimasíðu HK.

„Ég vil líka nota tækifærið og þakka Fram og þjálfara þeirra Christopher Harrington fyrir sumarið, ég á þeim mikið að þakka fyrir mikinn og góðan stuðning í sumar."

Heimild: HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.