Fotbolti.net
12.12.20 - 13:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Staða Mikaels hjá Midtjylland hefur vænkast eftir umdeilda ákvörðun

Staða Mikaels hjá Midtjylland hefur vænkast eftir umdeilda ákvörðun
Canon

Mynd: Getty Images

Mikael Neville Anderson hefur fjórum sinnum verið í byrjunarliði Danmerkurmeistara FC Midtjylland síðasta mánuðinn. Hann hefur þá þrisvar sinnum komið inn á sem varamaður. Hann var t.a.m. í byrjunarliði liðsins þegar liðið gerði jafntefli gegn Atalanta fyrsta þessa mánaðar. Fyrir 11. desember hafði Mikael einungis þrisvar sinnum verið í byrjunarliði toppliðsins í Danmörku.

Það vekur þá einnig athygli að Mikael hefur verið að spila inn á miðri miðjunni en hann hefur spilað mest á vinstri kantinum.
Fyrir bikarleikinn gegn Köge þann 11. desember var greint frá því að Mikael yrði ekki í landsliðshópi Íslands í leikjum liðsins í nóvember og þá gaf hann ekki kost á sér með U21 árs landsliðinu gegn Ítalíu út af leiknum gegn Köge. Í kjölfarið var hann svo ekki valinn í leik gegn Írlandi með U21 árs landsliðinu.

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari U21 árs landsliðsins, tjáði sig um Mikael í viðtali í síðasta mánuði og sagðist skilja ákvörðun Mikaels en var alls ekki sammála henni. Þ.e.a.s. þeirri ákvörðun Mikaels að velja bikarleik gegn Köge fram yfir leik með U21 árs landsliðinu.

Fréttaritari heyrði í Orra Rafni Sigurðarsyni sem fylgist vel með dönskum fótbolta, stundar nám í Danmörku og lýsir kappleikjum á ViaPlay.

Hver er ástæðan fyrir því að Mikael er byrjaður að fá fleiri mínútur með FCM upp á síðkastið?

„Ein helsta ástæðan fyrir fleiri mínútum er álagið á liðinu. Leikið er þétt í deildinni og Meistaradeildinni. Það er ekki vaninn að það sé spilað svona langt í desembermánuð. Þjálfarinn hefur verið að dreifa álaginu á fleiri leikmenn og gaf Mikael tækifærið á miðjunni í einum leik á miðjunni og í þeim leik var Mikael maður leiksins eða annar af tveimur bestu á vellinum. Eftir það hefur hann fengið fleiri tækifæri á miðjunni. Það er mikil sprengja í Mikael, mikil vinnsla og hann er góður á boltann - allt sem góð 'átta' þarf að hafa í sínum leik."

Eru einhver meiðsli í hópnum eða tilviljun að Mikael fékk tækifærið á miðjunni?

„Það hafa auðvitað verið eitthvað um meiðsli í hópnum eins og gengur og gerist hjá öllum liðum. Ástæðan er held ég frekar sú að það sé verið að dreifa álagi á fleiri leikmenn. FCM er með risastórann hóp og með fullt af gæðaleikmönnum. Eftir að Sisto var fenginn til baka frá Celta Vigo hefur verið erfiðara fyrir Mikael að komast í liðið. Mér finnst hann hafa gripið tækifærið vel og unnið sér inn þær mínútur sem hann hefur fengið að undanförnu á meðan verið er að dreifa álaginu."

Er Mikael, að þínu mati, búinn að vinna sér inn fast sæti í liðinu þegar litið er á að álagið minnkar eftir áramót?

„Já, mér finnst það frá mínu sjónarhorni. Hann er samt að berjast við risastór nöfn í liðinu eins og Awer Mabil, Pione Sisto og Anders Dreyer sem spila á köntunum. Svo á miðsvæðinu eru nöfn sem hafa verið að vekja athygli á sér eins og Onyeka og Cajuste sem Mikael er að berjast við. Svo þekkja margir Evander sem spilar á miðjunni. Ég sé alveg Mikael eiga möguleikann á því að byrja fleiri leiki í janúar og ég hef ekki heyrt neitt um að hann sé á leið í annað lið. Það voru sögusagnir um það fyrir tímabilið."

Er Mikael að spila betur á miðjunni en hann hefur verið að spila á kantinum, á þessari leiktíð?

„Mér finnst liðið fá meira út úr Mikael á miðjunni heldur en á kantinum. FCM er langbesta liðið í þessari deild þó Bröndby sé aðeins að ógna núna. Liðið heldur boltanum vel og sækir hratt á andstæðinga sem bæði hentar Mikael, sem er mjög snöggur, vel. Það sást gegn Liverpool hvernig hann braut niður sóknir, fyrstur á seinni boltana og kom sér líka í færi."

Það var mikið talað um ákvörðun Mikaels að gefa ekki kost á sér gegn Ítalíu. Hvernig finnst þér þessi ákvörðun líta út hjá honum mánuði seinna?

„Þessi ákvörðun lítur mjög vel út finnst mér, allavega félagsliða séð. Það sem verður að taka með inn í dæmið að hann var ekki sá eini sem var ekki laus í leikinn gegn Ítalíu. Ísak Óli Ólafsson fékk ekki leyfi frá Sönderjyske út af bikarleik og var svo í kjölfarið kallaður inn í leikinn gegn Írlandi. Að mínu mati finnst mér hárrétt ákvörðun hjá Mikael að fara eftir því sem félagið hans, FCM, biður um því það er auðvitað vinnustaðurinn hans. Þó það sé auðvitað heiður að spila með landsliðinu og allir vilja gera það, þá var mögulega, út frá því sem ég hef lesið og heyrt, einhver misskilningur milli landsliðsþjálfara eftir að Hamren ákvað að velja hann ekki í A-landsliðshópinn."
Staða Mikaels hjá Midtjylland hefur vænkast eftir umdeilda ákvörðun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Viðarsson

Arnar Þór Viðarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk treyjuna frá Salah

Fékk treyjuna frá Salah

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.