Fotbolti.net
13.01.15 - 10:40
Elvar Geir Magnússon

Björn Bergmann í FCK (Staðfest) - Gætu keypt hann

Björn Bergmann í leik með Wolves.

Björn Bergmann í leik með Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Íslenski sóknarmaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur verið lánaður frá Wolves á Englandi til danska stórliðsins FC Kaupmannahafnar.

Stale Solbakken, þjálfari FCK, þekkir Björn vel en hann fékk hann til Wolves þegar hann var stjóri enska liðsins.
Hluti af samkomulagi FCK og Wolves er að danska félagið getur svo keypt þennan 24 ára Íslending endanlega eftir lánsdvölina.

Björn var lánaður til Noregs á síðasta ári þar sem hann lék fyrir Molde sem varð tvöfaldur meistari þar í landi.

Hjá FCK er annar Íslendingur, Rúrik Gíslason, en nú er vetrarfrí í Danmörku og er liðið í öðru sæti, átta stigum á eftir toppliði Midtjylland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.