Fotbolti.net
13.01.15 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Carles Gil til Aston Villa (Staðfest)

Gil heldur á lofti í hlaupaskónum.

Gil heldur á lofti í hlaupaskónum.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt Carles Gil frá Valencia á 3,5 milljónir punda.

Sóknarleikur Villa hefur verið slakur á tímabilinu en Gil á að hressa upp á hann.
Hinn 22 ára gamli Gil getur spilað á báðum köntunum eða framarlega á miðjunni.

,,Við höfum verið að leita að skapandi leikmanni og hann kemur með eitthvað extra inn í liðið,\" sagði Paul Lambert stjóri Aston Villa.

Gil er uppalinn hjá Valencia en hann hefur einnig leikið með Elche á láni á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.