Fotbolti.net
13.01.15 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Helen Linskey áfram hjá Aftureldingu (Staðfest)

Helen Linskey.

Helen Linskey.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enska knattspyrnukonan Helen Lynskey hefur samið við Aftureldingu og mun leika með liðinu í Pepsideild kvenna í sumar.
Helen lék 12 leiki með Aftureldingu í Pepsideildinni síðasta sumar og skoraði 7 mörk auk þess sem hún lék einn bikarleik.

Mörk Helenar voru flest af dýrari gerðinni og sérlega eftirminnilegt stórkostlegt mark gegn Selfossi á útivelli og svo eitt mikilvægasta mark sumarsins sem hún gerði gegn Fylki í síðasta leik tímabilsins með þrumuskoti frá vítateig.

Helen er að upplagi framherji en lék gjarnan fremst á miðju í fyrrasumar og hélt um spottana í sóknarleik liðsins. Hún verður 27 ára síðar í þessum mánuði og hefur spilað í Englandi í vetur en hún lék einnig með Northwood University Seahawks í West Palm Beach í Florida á sínum tíma við góðan orðstír.

Helen sem er ættuð frá Rotherham í Englandi var valin í lið ársins í Pepsideildinni síðasta sumar og mun verða liði Aftureldingar mikill liðsstyrkur í sumar.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.