13.01.15 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Yaya Sanogo til Crystal Palace (Staðfest)

Sanogo fagnar marki gegn Dortmund.

Mynd: Getty Images

Sanogo fagnar marki gegn Dortmund.

Mynd: Getty Images
Crystal Palace hefur fengið framherjann Yaya Sanogo á láni frá Arsenal út þetta tímabil.
Hinn 21 árs gamli Sanogo hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá Arsenal á þessu tímabili.

Hann mun nú hjálpa Crystal Palace sem hefur einungis skorað 22 mörk í 21 leik í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
,,Þegar stjóri Arsenal ræddi við mig um Crystal Palace þá var ég mjög ánægður því ég vil spila fleiri leiki,\" sagði Sanogo.
,,Ég tel að Palace sé gott lið. Ég horfði á leik þeirra gegn Tottenham og þetta var frábær frammistaða hjá strákunum. Ég vona að ég geti hjálpað liðinu að ganga vel á síðari hluta tímabilsins.\"