Fotbolti.net
13.01.20 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Bruno Fernandes kynntur hjá Man Utd í dag eða á morgun

Bruno Fernandes er á leið til Manchester United

Bruno Fernandes er á leið til Manchester United

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska sjónvarpsstöðin TVI24 fullyrðir að enska félagið Manchester United tilkynni kaupin á Bruno Fernandes í dag eða á morgun.
Manchester United og Sporting hafa verið í viðræðum um Fernandes síðustu daga en kaupverðið er talið nema um 70 milljónum evra.

Portúgalska sjónvarpsstöðin hefur verið nákvæm þegar það kemur að félagskiptum leikmann en stöðin greindi fyrst frá félagaskiptum Ruben Neves til Wolves og Joao Felix til Atlético Madrid.

Man Utd hefur verið að eltast við Fernandes í dágóðan tíma en félagið reyndi að fá hann síðasta sumar. Hann endaði þó á því að framlengja við Sporting í nóvember en nú er fjárhagsstaða félagsins erfið og þörf á peningum inn í klúbbinn.

Fernandes verður að öllum líkindum leikmaður Man Utd í dag eða á morgun en þessi skapandi miðjumaður hefur skorað 13 mörk og lagt upp önnur 13 í 24 leikjum á tímabilinu með Sporting.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.