Fotbolti.net
13.01.20 - 17:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Segja að Valverde kveðji leikmenn og starfsfólk á morgun

Segja að Valverde kveðji leikmenn og starfsfólk á morgun
Canon

Mynd: Getty Images

Allt bendir til þess að Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, verði látinn taka poka sinn hjá félaginu.

Samkvæmt katalónskri útvarpsstöð hefur Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, látið Valverde vita að dagar hans hjá félaginu væru taldir.
Þá segja aðrir spænskir fjölmiðlar frá því að Valverde muni kveðja starfsfólk og leikmenn Barcelona á morgun.

Barcelona er sagt hafa skipulagt tvær æfingar á morgun. Marca segir fyrri æfinguna vera fyrir hádegi og þá seinni um kvöldmatarleytið.

Mauricio Pocchettino er talinn einna líklegastur til að taka við sem stjóri katalónska risans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.