Fotbolti.net
10.07.26 - 15:47
Kári Snorrason

Michael Edwards hættur hjá Liverpool

Edwards (t.v.) og Richard Hughes.

Edwards (t.v.) og Richard Hughes.

Canon

Mynd: Liverpool

Michael Edwards hefur látið af störfum sem yfirmaður fótboltamála hjá eigendahópi Liverpool.

Eigendahópurinn FSG segir að brotthvarf Edwards sé liður í fyrirhuguðum breytingum hjá félaginu. Richard Hughes, yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool, hefur jafnframt verið orðaður frá félaginu.

Edwards kom fyrst til Liverpool árið 2011 og hætti sumarið 2022. Hann var ráðinn á ný árið 2024 til að hafa umsjón með breytingunum eftir að Jurgen Klopp hætti sem stjóri liðsins.
Michael Edwards; tölfræðinördinn sem breytti Liverpool
TENGT EFNI

Michael Edwards; tölfræðinördinn sem breytti Liverpool

Edwards hefur fengið mikið lof fyrir góðan árangur sinn á leikmannamarkaðnum.

Mo Salah, Roberto Firmino, Sadio Mane, Andy Robertson og Virgil van Dijk voru meðal þeirra leikmanna sem hann sótti til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.