Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. janúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Simeone: Valverde gerði það sem hann þurfti að gera
Diego Simeone skildi Valverde
Diego Simeone skildi Valverde
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atlético Madrid á Spáni, telur að ákvörðun Federico Valverde um að tækla Alvaro Morata undir lok framlengingar hafi verið hárrétt.

Staðan var markalaus og nokkrar mínútur eftir af síðari hluta framlengingar er Morata var kominn einn í gegn. Valverde hljóp á eftir honum og tæklaði hann.

Valverde fékk að líta rauða spjaldið en hjálpaði Madrídingum samt sem áður að komast í vítakeppnina með þessu athæfi sínu. Real Madrid vann vítakeppnina og var Valverde valinn maður leiksins.

„Ég held að verðlaunin fyrir besta leikmann leiksins hafi verið eðlileg því Valverde vann leikinn með þessari ákvörðun," sagði Simeone.

„Þetta var mikilvægasta ákvörðunartakan í leiknum. Ef leikurinn hefði haldið áfram þá væri þetta líklega mark, þannig ég sagði honum að hafa ekki áhyggjur. Hann gerði það sem hann þurfti að gera," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner