Ítalski miðjumaðurinn Nicolo Zaniolo verður ekki meira með Roma á þessu tímabili en hann reif liðþófa í hné í 2-1 tapinu gegn Juventus í gær.
Zaniolo er einn mest spennandi miðjumaður Ítalíu um þessar mundir og er lykilmaður í Roma-liðinu og því mikið högg fyrir liðið en það er ljóst að hann er á leið í aðgerð.
Hann verður frá í allt að sex mánuði eftir aðgerðina og því mikil blóðtaka fyrir Rómverja.
Zaniolo hefur skorað 6 mörk og lagt upp 2 í 23 leikjum á tímabilinu en Roma er í 5. sæti með 35 stig þegar helmingur er eftir af mótinu.
Athugasemdir