Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 13. janúar 2021 14:38
Magnús Már Einarsson
Leikur Aston Villa og Everton í hættu
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort leikur Aston Villa og Everton í ensku úrvalsdeildinni verði spilaður á sunnudag.

Hópsmit kom upp hjá Aston Villa í síðustu viku en níu leikmenn liðsins greindust með kórónuveiruna. Æfingasvæði Aston Villa er lokað þessa dagana og óvíst er hvenær leikmenn snúa aftur til æfinga.

Enska úrvalsdeildin ætlar að funda með forráðamönnum Aston Villa í dag og ræða málin.

Aston Villa á nú þegar þrjá leiki inn á sum lið í deildinni en næsti leikur eftir Everton leikinn er gegn Manchester City á miðvikudaginn í næstu viku.

Þeim leik var frestað í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar þar sem City fékk lengra frí eftir að hafa tekið þátt í Meistaradeildinni í ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner