Yves Bissouma hefur verið orðaður við mörg stórlið síðasta árið eða svo. Man Utd, Man City, Liverpool, Chelsea, Arsenal og Tottenham hafa fylgst með leikmanninum en Bissouma er sáttur hjá Brighton.
Nú síðast hefur Aston Villa verið með augastað á Malí-manninum og einnig félög utan Englands.
Nú síðast hefur Aston Villa verið með augastað á Malí-manninum og einnig félög utan Englands.
Bissouma gæti kostað allt að 50 milljónir punda og er hann sagður íhuga að spila undir stjórn Steven Gerrard ef Aston Villa kemur með tilboð. ÞEtta herma heimildir Sky Sports.
Bissouma er þessa stundina með fulla einbeitingu á Afríkukeppnina en hann kom inn á í eftirminnilegum sigri Malí gegn Túnis í gær. Bissouma kemur í fyrsta lagi aftur til Englands þann 20. janúar.
Athugasemdir