Undirbúningstímabilið á Íslandi er í fullum gangi og eru lið farin að undirbúa sig fyrir næsta sumar.
Í dag eru þrír leikir á dagskrá í Reykjavíkurmóti kvenna þar sem sjálfir Íslandsmeistararnir eru meðal annars í eldlínunni.
Valur, sem varð Íslandsmeistari síðasta sumar, mætir KR á Hlíðarenda. KR komst upp úr Lengjudeildinni síðasta sumar og spilar í efstu deild á nýjan leik næsta sumar.
Sá leikur byrjar 18:00 og hefjast tveir aðrir leikir klukkutíma síðar. Víkingur Reykjavík tekur á móti Fjölni og spilar Fylkir við Fram í Árbænum.
Fyrsti leikur ársins í Reykjavíkurmóti kvenna endaði með 2-4 sigri KR gegn Fram. Þetta eru leikir númer tvö, þrjú og fjögur í mótinu.
fimmtudagur 13. janúar
Reykjavíkurmót kvenna - A-riðill
18:00 Valur-KR (Origo völlurinn)
19:00 Víkingur R.-Fjölnir (Víkingsvöllur)
Athugasemdir