Víkingur R. 3 - 2 Fjölnir
0-1 Anna María Bergþórsdóttir ('50 )
1-1 Elma Rún Sigurðardóttir ('51 )
1-2 Sara Montoro ('53 )
2-2 Sigdís Eva Bárðardóttir ('83 )
3-2 Dagný Rún Pétursdóttir ('90 )
0-1 Anna María Bergþórsdóttir ('50 )
1-1 Elma Rún Sigurðardóttir ('51 )
1-2 Sara Montoro ('53 )
2-2 Sigdís Eva Bárðardóttir ('83 )
3-2 Dagný Rún Pétursdóttir ('90 )
Víkingur R. vann endurkomusigur á Fjölni, 3-2, er liðin mættust á Víkingsvelli í Reykjavíkurmótinu í kvöld. Víkingar skoruðu tvö mörk á síðustu mínútum leiksins.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Anna María Bergþórsdóttir Fjölnisstelpum á bragðið á 50. mínútu en Elma Rún Sigurðardóttir jafnaði innan við mínútu síðar.
Fjölnir svaraði um hæl með marki frá markamaskínunni Söru Montoro.
Þegar sjö mínútur voru eftir jafnaði Sigdís Eva Bárðardóttir fyrir Víking og þegar tæpar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma gerði Dagný Rún Pétursdóttir sigurmark fyrir Víking.
Lokatölur 3-2 í Víkinni. Þetta var fyrsti leikur beggja liða en Fjölnir mætir næst Fylki á þriðjudag á meðan Víkingur spilar við Þrótt.
Athugasemdir