13.02.15 - 18:26
Magnús Már Einarsson
Arna Sif í Gautaborg (Staðfest)

Arna Sif Ásgrímsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif Ásgrímsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif Ásgrímsdóttir fyrirliði Þórs/KA, hefur gert eins árs samning við sænska félagið Gautaborg. Þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net.
Arna Sif æfði og spilaði æfingaleik með Gautaborg á dögunum og hún hefur nú samið við félagið.
Gautaborg er sterkt lið sem lauk keppni á síðasta tímabili í þriðja sæti Damallsvenska.
Arna Sif sem verður 22 ára á þessu ári á átta tímabil að baki með liðinu í efstu deild og á þeim tíma hefur hún leikið 155 leiki í deild og bikar og mörkin eru orðin 30.
Arna, sem kom við sögu með A-landsliðinu í fyrra, hefur leikið með Þór allan sinn feril.