Fotbolti.net
13.02.15 - 19:40
Brynjar Ingi Erluson

Viktor Bjarki Arnarsson í Víking R. (Staðfest)

Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, ásamt Viktori Bjarka.

Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, ásamt Viktori Bjarka.

Canon

Mynd: Víkingur

Víkingur Reykjavík hefur staðfest komu Viktors Bjarka Arnarssonar til félagsins en hann samdi við félagið til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í kvöld.
Viktor Bjarki er uppalinn í Víking en hann hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Fram og varð meðal annars bikarmeistari með liðinu.

Hann yfirgaf félagið eftir tímabilið og hafði verið að æfa með sínu gamla félagi, KR, en hefur þó nú ákveðið að snúa aftur heim í Víkina.

Hann gerði þriggja ára samning við félagið en hann lék síðast með liðinu árið 2006 er hann gerði 8 mörk í 18 leikjum það sumarið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.