Celtic og Rangers hafa barist við topp deildarinnar í vetur. Nú virðast þó leiðir vera að skilja.
Celtic rústaði Hearts í gær, 5-0, en á sama tíma lá Rangers á útivelli gegn Kilmarnock.
Celtic rústaði Hearts í gær, 5-0, en á sama tíma lá Rangers á útivelli gegn Kilmarnock.
Rangers komst yfir í leiknum en heimamenn komu til baka og skoruðu sigurmarkið á 88. mínútu.
Celtic hefur tíu stiga forskot og hefur leikið 26 leiki. Rangers hefur leikið 25 leiki, alls eru leiknar 33 umferðir í skosku deildinni.
Celtic hefur orðið skoskur meistari samfleytt frá og með árinu 2012.
Athugasemdir