Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 13. febrúar 2020 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía í dag - Zlatan tekur á móti Ronaldo
Mynd: AC Milan
Í kvöld fer fram fyrri leikur AC Milan og Juventus í ítalska bikarnum, Coppa Italia.

Leikurinn í kvöld fer fram á Stadio Giuseppe Meazza (San Siro) í Mílanó en seinni leikurinn fer fram á heiamvelli Juventus eftir þrjár vikur.

Ef liðin tefla fram sínum bestu liðum í kvöld, sem líklegt verður að teljast, mætast tveir af bestu knattspyrnumönnum heims síðustu fimmtán árin.

Cristiano Ronaldo hefur oft og mörgum sinnum verið valinn besti leikmaður í heimi og þá hefur Zlatan Ibrahimovic lengi verið talinn einn besti framherji í heimi.

AC sigraði Spal og Torino til að komast í undanúrslitin á meðan Juve lagði Roma og Udinese á leið sinni.

Ítalski bikarinn - Undanúrslit, fyrri leikur
19:45 Milan - Juventus
Athugasemdir
banner
banner