Fotbolti.net
13.02.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Eze ósýnilegur og var tekinn af velli í hálfleik

Eberechi Eze.

Eberechi Eze.

Canon

Mynd: EPA

Eberechi Eze varð hetja í augum stuðningsmanna Arsenal þegar hann skoraði þrennu gegn grönnunum í Tottenham í nóvember. En síðan hefur lítið gengið upp hjá honum.

Eze hefur ekki skorað síðan og var nánast ósýnilegur áður en hann var tekinn af velli í hálfleik í 1-1 jafnteflisleik Arsenal gegn Brentford í gær.

Í byrjunarliðsleik Eze þar á undan fór hann af velli á 57. mínútu gegn Wolves og þar á undan í hálfleik gegn Aston Villa.
Arteta: Eins og í spilavíti
TENGT EFNI

Arteta: Eins og í spilavíti

„Þetta var taktísk skipting. Við þurftum á öðruvísi leikmanni að halda, sérstaklega miðað við hvernig þeir voru að pressa og við byrjuðum mjög, mjög vel í seinni hálfleik," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, þegar hann var spurður að því af hverju Eze fór af velli í hálfleik í gær.

„Hann hefur átt sína kafla en það er ekki auðvelt að aðlagast nýju liði," sagði Arteta spurður út í tímabilið hjá Eze sem er ekki að nýna sömu hliðar og hann gerði hjá Crystal Palace og ljóst að það verður erfitt fyrir hann að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Chelsea1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Eze ósýnilegur og var tekinn af velli í hálfleik
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.