Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 19:00
Kári Snorrason
Viðtal
Landslagið í fótboltanum er að breytast
Arnar Gunnlaugsson.
Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland féll niður í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir tap gegn Kósovó í umspili fyrir tæpu ári síðan.
Ísland féll niður í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir tap gegn Kósovó í umspili fyrir tæpu ári síðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr viðureign Íslands og Lúxemborg fyrir tæpum þremur árum.
Úr viðureign Íslands og Lúxemborg fyrir tæpum þremur árum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnar segir það skipta sköpum að eiga lokaleikinn á Laugardalsvelli.
Arnar segir það skipta sköpum að eiga lokaleikinn á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnar hefði viljað mæta Færeyjum.
Arnar hefði viljað mæta Færeyjum.
Mynd: EPA
„Það er í raun ótrúlegt hvað þeir brenna mikið fyrir landsliðið“
„Það er í raun ótrúlegt hvað þeir brenna mikið fyrir landsliðið“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið mætir Búlgaríu, Eistlandi og sigurvegaranum úr viðureign Lúxemborgar og Möltu í C-deild Þjóðadeildarinnar í haust. Ísland féll úr B-deildinni í fyrra og var í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn.

Breytt snið verður á landsleikjagluggum í haust. Helsta breytingin felur í sér einn stóran þriggja vikna landsleikjaglugga frá september og inn í október. Á ellefu daga kafla mun Ísland spila fjóra leiki.

Dregið var í riðlana í gær í Brussel og var Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari viðstaddur. Fótbolti.net náði tali af Arnari sem var nýlentur frá Belgíu og ræddi við hann um dráttinn og niðurröðunina.

Áskorun fyrir alla
Fjórir leikir á ellefu dögum, hvernig líst þér á það?
„Þetta er eins og allt annað, það er þróun í öllu. Þessi gluggi verður að ég held á næsta ári líka í undankeppni EM. Ég veit ekki hvort þetta verði svona næstu 20 árin en þetta er það sem koma skal. Það þarf bara aðlagast þessu eins og gengur og gerist. Það eru búnar að vera reglulegar breytingar í fótboltanum og landslagið er að breytast. Þetta er eitthvað sem við þurfum að takast á við. Þetta verður áskorun fyrir alla.“

Muntu þurfa að stækka hópinn?
„Ég held að það verði alltaf ákveðinn fjöldi til að byrja með. En ég held að það verði óljósara á milli leikja. Ef að fimm meiðast í fyrsta leiknum, máttu taka nýja fimm inn? - Það er eitthvað sem ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki vel til. En það er augljóst að það eru ekki ellefu menn að fara spila fjóra leiki í röð. 'Rotation' er lykilorð í fótbolta í dag, þannig að það mun skipta miklu máli í haust.“

Þessir gluggar henta þá smærri þjóðum líkt og Íslandi þá síður?
„Það gefur auga leið að stærri þjóðir eru betur í stakk búin til að takast á við þetta. En að sama skapi þá erum við að reyna búa til einhvern kjarna, ekki bara af ellefu mönnum. Til þess að gera þetta þurfa allir að vera tilbúnir að spila alvöru leiki. Mér fannst púllían á síðasta ári hafa stækkað töluvert - Það voru 28 leikmenn sem spiluðu tíu leiki. Það eru fleiri góðir leikmenn sem eru að koma upp líka. Ég held að við séum í góðum málum. Við ættum að hlakka til frekar en að tala þetta niður.“

Á ferð og flugi
Í september/október glugganum byrjar íslenska liðið á heimaleik, fer svo í útileik í Lúxemborg eða Möltu, heldur aftur heim á Laugardalsvöll og endar svo í Tallinn í Eistlandi. Arnar var spurður um ferðalögin miklu.

„Þetta hefði getað verið verra. Það eru kostir og gallar í þessu. Lokaleikurinn í riðlinum er heimaleikur sem að skiptir mjög miklu máli. Í ljósi þess að við erum komin með nýjan 'hybrid'-völl, þá erum við titluð sem vetrarþjóð. Þetta skiptir miklu máli, ef við eigum möguleika í lokaleik að þá vera á heimavelli frekar en á útivelli. Það eru örugglega mörg lið sem lenda í því sama í þessum september/október glugga. Menn þurfa að læra fljótt á þetta.“

Hvernig meturu andstæðingana?
Eins og fyrr sagði er Ísland í riðli með Búlgaríu, Eistlandi og sigurvegaranum úr viðureign Lúxemborgar og Möltu sem fer fram í mars.

„Það er bara gaman að spila gegn þessum þjóðum. Það er enginn leikur auðveldur í þessum bransa. Þetta verður kannski öðruvísi áskorun að því leytinu til að við eigum núna að vera eitt af sterkari liðunum í þessari C-deild. Það eru kröfur sem við gerum og örugglega stuðningsmenn líka. Það er líka ekki bara að vinna þessa leiki heldur hvernig við förum að því. Sérstaklega heimaleikina, útileikirnir verða erfiðari.

Þetta er tækifæri. Ef við vinnum riðilinn þá nánast gulltryggjum við okkur í umspil fyrir Evrópumótið. Þó að það hafi verið gífurleg vonbrigði að vera ekki í B-deildinni þá eru alveg tækifæri í þessu sem við verðum að nýta. Við munum gera allt sem við getum til að koma okkur aftur í B-deildina.“


Krafan er þá að vinna riðilinn?
„Já, það er engin spurning. Við þurfum ekki að tala undir rós með það. Að sama skapi verður þetta erfitt líka. Auðvitað eigum við að gera kröfur á að vinna þetta, en þá verður allt að ganga upp.“

Færeyingar óskamótherjinn
Arnar var viðstaddur dráttinn í gær sem fór fram í Brussel. Hann segir óskamótherjana hafa verið Færeyjar.

„Ég hefði viljað fá Færeyingana. Það er langt síðan við spiluðum keppnisleik við þá. Ég held að það hefði verið gaman fyrir báðar þjóðir. Það var draumaandstæðingurinn. Ég er samt mjög ánægður með þennan drátt. Lúxemborg er að stíga upp. Síðan er ég er af þeirri kynslóð sem man eftir gullaldarliði Búlgara í kringum HM 1994 - Stoichkov og allir þessir kallar. Svo er Eistland flott land til að heimsækja, þetta verða allt skemmtilegir leikir.“

Ánægjulegt hvað þeir brenna fyrir landsliðið
Aron Elís Þrándarson neyddist til að draga sig úr landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í lok mánaðar vegna meiðsla í kálfa. Í hans stað var Jóhann Berg Guðmundsson kallaður inn í hópinn, en hann var laus í verkefnið eftir að hann rifti samningi sínum við Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

„Það er gríðarlega sterkt að fá Jóa inn. Ég hef spjallað við hann og Gylfa, það er í raun ótrúlegt hvað þeir brenna mikið fyrir landsliðið. Þeir eru báðir mjög spenntir fyrir því að koma. Ég ætla ekki að segja að það komi mér á óvart en þetta er ánægjulegt.

Ánægjulegt að heyra hvernig þeir ætla að tækla þennan leik. Það verður geggjað að hitta þá, ég er virkilega ánægður með þetta. Það er auðvitað leiðinlegt að Aron missi af þessu en það er ekki leiðinlegt að geta nýtt sér reynslu Gylfa og Jóa.“

Athugasemdir
banner
banner