banner
   fös 13. mars 2020 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo: Tala ekki við ykkur sem knattspyrnumaður
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er búinn að tjá sig um kórónaveiruna með myndbirtingu á Instagram.

Ronaldo er leikmaður Juventus, sem er meðal þeirra félaga sem hafa verið sett í sóttkví vegna veirunnar.

Liðsfélagar hans Daniele Rugani og Paulo Dybala hafa báðir verið greindir með veiruna.

„Heimurinn er að ganga í gegnum mjög erfiða stund sem krefst fyllstu athygli okkar allra. Ég tala ekki við ykkur í dag sem knattspyrnumaður heldur sem sonur, faðir og manneskja sem hefur áhyggjur af því sem er að gerast í heiminum,"

„Það er mikilvægt að allir fylgi fyrirmælum WHO (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin) og ríkisstjórna sinna til að höndla ástandið. Að vernda mannslíf er mikilvægara en allt annað.

„Allar hugsanir mínar fara til þeirra sem hafa misst einhvern náinn sér og þeirra sem eru að berjast við veiruna eins og liðsfélagi minn Daniele Rugani."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner