Fotbolti.net
13.03.26 - 11:14
Elvar Geir Magnússon

Moyes botnar ekki í gagnrýninni sem Arsenal fær

David Moyes, stjóri Everton.

David Moyes, stjóri Everton.

Canon

Mynd: EPA

David Moyes, stjóri Everton, kemur kollega sínum Mikel Arteta til varnar og segist ekki skilja í þeirri gagnrýni sem leikstíll Arsenal hefur fengið.

Arsenal og Everton mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 17:30 á morgun.
„Vil ekki særa Arteta en stend við ummæli mín“
TENGT EFNI

„Vil ekki særa Arteta en stend við ummæli mín“

Á fréttamannafundi í morgun var Moyes spurður hvernig áskorun það væri að fara að mæta liði sem væri svona líkamlega öflugt og sterkt í föstum leikatriðum?

„Þú lætur það hljóma eins og það sé vandamál að þeir sterkir og góðir í föstum leikatriðum. Ég sé ekkert vandamál, þetta er hluti af leiknum," segir Moyes.

„Ef allir þyrftu að spila 'hinn fallega leik' og allt að vera fullkomið þá væri fótbolti leiðinlegur. Hluti af ástæðunni fyrir þessari umræðu er að þetta er aðeins öðruvísi en hefur sést undanfarin ár. Þetta gefur ykkur blaðamönnum eitthvað að tala um en mér þætti leiðinlegt að fara á völlinn og sjá fótbolta alltaf spilaðan á sama hátt. Ég vil að lið séu með mismunandi leikstíla og áherslur."

„Við eigum nokkra magnaða fótboltastjóra og Mikel Arteta er einn af þeim. Einn af þeim sem hafa komið hingað og sýnt hvað þeir geta. Mikel hefur náð að þróa lið sitt og bæta. Hann er kominn með virkilega gott lið."

Arteta lék á sínum tíma undir stjórn Moyes hjá Everton.

„Mikel hefur sýnt í gegnum tíðina að hann á ýmis brögð upp í erminni, hann reynir allt til að lið sitt vinni. Í þessu starfi verður þú að finna leiðir að sigrum. Það er hluti af starfinu. Þú getur spilað rosa vel en það sem virkilega skiptir máli er að vinna," segir Moyes.

Annars ætti Moyes að hafa úr fullum hópi að velja fyrir leikinn á morgun. Varnarmaðurinn Jarrad Branthwaite er kominn á gott skrið og hefur byrjað síðustu fjóra leiki en hann var frá í sex mánuði vegna meiðsla aftan í læri.
Mikel Arteta.

Mikel Arteta.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.