Fotbolti.net
13.03.26 - 09:10
Elvar Geir Magnússon

Owen segir að Carrick eigi að fá starfið - „Allir elska hann“

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Michael Owen segist ekki trúa því að fólk efist um að Michael Carrick eigi að fá stjórastarf Manchester United til frambúðar.

„Manchester United hefur beðið í um tólf ár, félagið hefur reynt allt síðan Sir Alex hætti. Núna er liðið byrjað að spila vel, ná úrslitum og stuðningsmenn eru um borð. Ertu að segja mér að ef hann nær þriðja sætinu þá verði sagt við hann: Takk, en nei takk. Hvernig er það mögulegt?" segir Owen í hlaðvarpsþætti BBC.
Scholes hafði samband við Carrick
TENGT EFNI

Scholes hafði samband við Carrick

Carrick, sem lék á sínum tíma 464 leiki fyrir Manchester United, var ráðinn bráðabirgðastjóri eftir að Rúben Amorim var rekinn í janúar. Undir hans stjórn hefur liðið unnið sex af átta leikjum og lyft sér upp úr sjötta sætinu upp í það þriðja í ensku úrvalsdeildinni.

Owen og Carrick léku saman hjá United milli 2009 og 2012 og segir Owen að sinn gamli liðsfélagi hafi komið með ró aftur í félagið. Wayne Rooney er sammála Olwen.

„Allir hjá Manchester United elska Michael Carrick og þeir óttast bara að þetta endi ekki vel. Hann hefur gert ótrúlega hluti," segir Rooney.

Manchester United er að skoða mögulega stjórakosti til að taka við til frambúðar í sumar, Carrick er einn af þeim möguleikum.
Wayne Rooney.

Wayne Rooney.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.