Liam Rosenior er mjög ánægður með að fyrirliðinn og lykilmaðurinn Reece James sé búinn að skrifa undir nýjan samning við Chelsea.
James hefur verið fyrirliði Chelsea síðustu ár en ekki náð miklun spiltíma sökum tíðra meiðslavandræða.
Hann er hægri bakvörður að upplagi en hefur einnig verið að spila óaðfinnanlega sem djúpur miðjumaður. Hann er ótrúlega gæðamikill og fjölhæfur leikmaður og hefur Rosenior, sem var ráðinn til Chelsea í janúar, miklar mætur á honum.
„Ég get ekki hætt að brosa. Við erum búnir að binda besta fótboltamann heims í sinni stöðu við félagið. Svo lengi sem ég verð við stjórnvölinn hérna verður Reece fyrirliðinn minn," sagði Rosenior um undirskriftina.
James var einnig himinlifandi með samninginn, sem gildir í rúmlega sex ár eða til sumarsins 2032. James, sem er 26 ára gamall, er uppalinn hjá Chelsea.
„Chelsea skiptir mig svo miklu máli og ég hef alltaf sagst ætla að spila fyrir liðið þegar ég er upp á mitt besta. Þessi samningur staðfestir þá áætlun. Ég er mjög spenntur fyrir framtíð félagsins og hef mikla trú á því verkefni sem er í gangi hér. Ég veit hvernig það er að vinna titla og ég finn á mér að við munum vinna þá marga komandi árum," sagði James sjálfur.
13.03.2026 11:49
Fyrirliðinn hjá Chelsea til 2032 (Staðfest)
Athugasemdir


